Aðalfundur umf Neista

Aðalfundur Neista var haldin í gærkvöldi. Litlar breytingar voru gerðar á stjórn félagsins en Kristján Jónsson verður áfram formaður eins og sl tvö ár. Ný inn í stjórn í stað Auðar Birgisdóttur kemur Ingibjörg Halldórsdóttir. Aðrir í stjórn eru Anna Freyja Vilhjálmsdóttir, Jóhann Sigmarsson og Hjalti Þórðarson.
Meðal helstu uræðuefna voru þjálfaramál, unglingastarfið, aðstöðumál og samvinna við önnur félög.