5 titlar í viðbót á seinni degi MÍ

Seinni dagur Meistaramóts Íslands var í dag og áfram héldu keppendur UMSS að hala inn nokkra sigra. Ólafur Guðmundsson sigraði þrístökk með 14,09 metra (-3,0 m/s), Sigurbjörn Árni Arngrímsson sigraði 800 metra hlaup á 1:54,25 mín og Sunna Gestsdóttir vann 200 metra hlaup á 24,43 sek (-2,5 m/s). Auk þess unnu báðar boðhlaupssveitirnar 4x400 metra boðhlaup. Í heildarstigakeppni mótsins endaði lið UMSS í  þriðja sæti.