Í tilefni af 100 ára afmæli Ungmennasambands Austur-Húnvetninga, verður hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 31. mars kl. 14:00-16:00. Meðal dagskárliða má nefna: Myndasýningu úr starfi USAH í 100 ár, verðlaunaafhending í myndasamkeppni og ljóðasamkeppni, frjálsíþróttamót, golfkynning, Skotfélagið Markviss með sýningu á munu, kynning á starfssemi sunddeildar Hvatar og skíðadeild Fram og fl.
Þá verða Húnavökurit frá upphafi til sýnis, fjöltefli í skák, júdókynning og margt fleira skemmtilegt. Allir hjartanlega velkomnir. Vonandi sjá sem flestir ungir sem aldnir sér fært um að mæta og samgleðjast USAH á þessum merku tímamótum.