Íþróttamaður ársins 2023

f.v. Anna Karen Hjartardóttir, Daníel Gunnarsson, Sigtryggur Arnar Björnsson, Ísak Óli Traustason og…
f.v. Anna Karen Hjartardóttir, Daníel Gunnarsson, Sigtryggur Arnar Björnsson, Ísak Óli Traustason og Gunnar Þór Gestsson.
Í gær fór fram okkar árlega hátíðarsamkoma Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) og sveitarfélags Skagafjörður þar sem tilkynnt var hver hlaut kosningu íþróttamanns ársins, lið ársins og þjálfara ársins.
 
  • Íþróttamaður ársins 2023 - Sigtryggur Arnar Björnsson
  • Þjálfari ársins 2023 - Pavel Ermolinskij
  • Lið ársins 2023 - Meistarafl.karla körfuknattleiksdeild Tindastóls

Það eru Ungmennasamband Skagafjarðar og sveitarfélagið Skagafjörður sem standa að kjörinu. Boðið var upp á veitingar og Sæþór Már Hinriksson sá um að allir væru syngjandi kátir. Gunnar Þór Gestsson, formaður UMSS, hafði veg og vanda að afhendingu verðlauna.

Fimm voru tilnefndir sem íþróttamenn Skagafjarðar; Anna Karen Hjartardóttir kylfingur í Golfklúbbi Skagafjarðar, Daníel Gunnarsson hestamaður í Hestamannafélaginu Skagfirðing, Ísak Óli Traustason, frjálsíþróttamaður í Umf. Tindastól, Murielle Tiernan knattspyrnumaður í Umf. Tindastól og Sigtryggur Arnar Björnsson körfuknattleiksmaður í Umf. Tindastól. Arnar var að auki valinn Íþróttamaður Tindastóls.

Auk Pavels voru Annika Líf Maríudóttir Noack (júdódeild Tindastóls), Atli Freyr Rafnsson (Golfklúbbi Skagafjarðar), Halldór Jón Sigurðsson (knattspyrnudeild Tindastóls) og Sigurður Arnar Björnsson (frjálsíþróttadeild Tindastóls) tilnefnd sem þjálfarar ársins.

Þá voru kvennasveit Golfklúbbs Skagafjarðar og kvennalið Tindastóls í knattspyrnu tilnefnd sem lið ársins ásamt körfuboltaliði karla hjá Tindastóli. Það voru þeir Pétur Rúnar, Drungilas, Helgi Rafn og Arnar Björns sem tóku við verðlaununum fyrir hönd meistaraliðsins.

Hvatningarverðlaun UMSS árið 2023 hlutu eftirtaldir aðilar:
Alexander Leó Sigurjónsson - Hestamannafélagið Skagfirðingur
Axel Arnarsson - Umf. Tindastóll körfuknattleiksdeild
Álfrún Anja Jónsdóttir - Umf. Tindastóll frjálsíþróttadeild
Dagbjört Sísí Einarsdóttir - Golfklúbbur Skagafjarðar
Dagmar Helga Helgadóttir - Umf. Neisti
Emma Katrín Helgadóttir - Umf. Tindastóll badmintondeild
Freyr Hugi Herbergsson - Umf. Tindastóll júdódeild
Gígja Rós Bjarnadóttir - Golfklúbbur Skagafjarðar
Halldór Stefánsson - Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári og Umf. Tindastóll frjálsíþróttadeild
Hjördís Halla Þórarinsdóttir - Hestamannafélagið Skagfirðingur
Ivan Tsvetomirov Tsonev - Umf. Tindastóll knattspyrnudeild
Ísak Hrafn Jóhannsson - Ungmennafélagið Tindastóll skíðadeild
Jóhanna María Grétarsdóttir Noack - Umf. Tindastóll Júdódeild
Klara Sólveig Björgvinsdóttir - Umf. Tindastóll körfuknattleiksdeild
Rakel Sonja Ámundadóttir - Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári
Sigríður Hrafnhildur Stefánsdóttir - Umf. Tindastóll knattspyrnudeild
Tómas Bjarki Guðmundsson - Golfklúbbur Skagafjarðar
Una Karen Guðmundsdóttir - Golfklúbbur Skagafjarðar