Unglingalandsmót UMFÍ 2009

Gísli Páll Pálsson formaður HSK og Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður UMFÍ.
Gísli Páll Pálsson formaður HSK og Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður UMFÍ.

HSK var valið fyrirmyndarfélagið á 12. Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands sem fram fór á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Það var Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sem tilkynnti þessa niðurstöðu á lokaathöfn mótsins sl. sunnudagskvöld.

Innganga HSK vakti mikla athygli og var mikill metnaður lagður í hana af hálfu héraðssambandsins.Umgjörð sambandsins var sömuleiðis til fyrirmyndar á mótinu.

Þess má geta að þrjú árin þar á undan var HSH valið fyrirmyndarfélagið.