Ragnar Frosti góður á sænska meistaramótinu

Ragnar Frosti Frostason UMSS keppti á sænska meistaramótinu í frjálsíþróttum í Malmö um helgina. Hann náði sínum besta árangri á árinu í 400m hlaupi og var nálægt því að komast í úrslit.

 Ragnar Frosti hljóp í undanrásum á 49,52sek og átti níunda besta tímann, en átta hlupu til úrslita.  Sigurvegari í úrslitahlaupinu var Nil de Olivera sem hljóp á 46,76sek.