Næsta Unglingalandsmót verður í Skagafirði

Á stjórnarfundi Ungmennafélags Íslands sem haldinn var 6. desember voru teknar fyrir umsóknir frá Ungmennasambandi Skagafjarðar og Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands um að halda 7. Unglingalandsmót UMFÍ árið 2004.
Samþykkti stjórn UMFÍ að Ungmennasamband Skagafjarðar myndi sjá um framkvæmd 7. Unglingalandsmóts UMFÍ og verður það haldið á Sauðárkróki 30. júlí - 2. ágúst 2004.
Það verður því mikið um að vera næsta sumar og tvö landsmót með þriggja vikna millibili.